Sælir piltar,
nýjasta nýtt!
Magnús Barðdal kom með þá frábæru hugmynd að leigja bústað og halda golfmót gargó.
Fyrir liggur að verlsunarmannahelgin er illa til þess fallin að halda slíkt mót, og erfitt að hóa saman hópinn um þá helgi sökum anna og annarra hugmynda

Eftir að hafa velt þessu fyrir mér, ásamt nokkrum ónefndum mönnum, hefur verið tekin sú ákvörðun að taka síðustu helgina í ágúst frá fyrir þennan hitting. Síðasta helgin í ágúst eru dagarnir 28-30 ágúst.
Mér skilst að flestir ætli sér að vera mættir í borgina fyrir lok ágúst, er það ekki rétt skilið hjá mér ?
Ég hef aðgang að orlofshúsum í Brekkuskógi sem við getum tekið á leigu. Brekkuskógur er rétt hjá Laugarvatni og Gullfoss og Geysi.
(sjá nánar hér). Það eru mjög fáir stórir bústaðir eftir lausir þessa helgi og því er nauðsynlegt að hafa hraðar hendur ef við ætlum að sleppa við að taka einn minni bústað. Bústaðurinn kostar 10.000 kall, sem er ekki mikið, og ennþá minna fyrir hvern og einn ef við náum einhverjum fjölda í þetta.
Í bústaðnum er allt til alls, rúm og dýnur á svefnlofti, mönnum er hollast að taka með sér sæng/svefnpoka og kodda og jafnvel eitt lak líka, auk annarra nauðsynja. nánar um það síðar.
Fyrirhugað er að halda hið árlega Gargó-Invitational gólfmót, sem er systurmót US-Open á Íslandi. Golfmótið verðurhaldið á hinum geysivinsæla velli
Golfklúbbsins Dalbúi, Miðdal, Laugarvatni (á eftir að ganga frá því þegar við vitum meira um fjölda). Kostnaður við mótið er ókunnur,en reynt verður að wheela og deala um verð eftir bestu getu.
Að móti loknu verður haldið í bústaðinn og eldað (veit ekki hvort það sé eitthvað gasgrill þarna)
Öllum kvöldum mótshelgarinnar verður eytt í heita pottinum, þar sem sagðar verða ótal frægðarsögur.... og einstaka lygasögur.
Einnig stendur til boða að skreppa í skoðunarferð þar sem Gullfoss og Geysir verða á boðstólnum.
Mér heyrist flestir vera mjög spenntir fyrir svona hitting, enda hefur ekki verið farið í bústaðaferð í háa herrans tíð. Nú er um að gera að grípa gæsina og fjölmenna í eitt skipti fyrir öll í smá gargó-teiti. Það er nú ekki á hverjum degi sem við sláum upp í veislu og jafnvel mætti segja að það sé orðinn sjaldgæfur viðburður.
Við erum nú ekki alveg dauðir úr öllum æðum.
Ég ætla að gefa mönnum frest til 31. júlí til þess að svara því hvort þeir ætla að vera með (uppá bústaðinn og golfvöllinn).
Ég hlakka til að heyra frá ykkur, látið orðið berast!
Bragi Freyr Kristbjörnsson
mótshaldari